Ívið minna verður malbikað um landið allt í ár heldur en í fyrra, enda var síðasta ár eitt það stærsta í sögu Vegagerðarinnar þegar kemur að slitslagsverkefnum.
Þetta segir Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar.
Hann bætir við að stóra árið í fyrra hafi helgast af innspýtingu í málaflokkinn ásamt góðu tíðarfari. „Vetur kom seint og menn höfðu tækifæri til að vinna meira í þessu viðhaldi en oft áður,“ segir Óskar Örn.
Hann nefnir að Vegagerðin bregðist við og efli slitlög þegar umferð aukist á ákveðnum svæðum, til dæmis vegna breyttrar atvinnustarfsemi. Dæmi um þetta eru Vestfirðir þar sem þungaflutningar hafa aukist í kringum sjókvíaeldi.
Aukinn straumur ferðamanna hefur einnig sín áhrif og bendir hann á að ein rúta brjóti niður veg álíka mikið og um það bil 10 þúsund smábílar. „Þetta segir okkur að með fleiri slíkum farartækjum kallar það á mun meira viðhald á þeim vegum.“
Spurður út í stöðu mála á gullna hringnum svokallaða þar sem ferðamenn eru fjölmennir segir Óskar Örn að ekki eigi að malbika meira þar í ár en venjulega.
Hlutfall malbiks hefur þó verið aukið, til dæmis á Þingvallavegi og Biskupstungnabraut, vegna aukinnar umferðar með tilkomu ferðamanna, en slíkt kostar rúmlega þrisvar sinnum meira en klæðning.
Heimild: Mbl.is