F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hverfið mitt 2022 – Vestur – Háaleiti og Bústaðir, útboð nr. 15546
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2022 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.
Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, stígalýsing, hellulögn, gróðursetning og þökulögn.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 1.130 m3
- Fylling 639 m3
- Ljósastólpar 16 stk.
- Hellulögn 520 m2
- Þökulögn 11.550 m2
- Tré -stofntré 45 stk.
Verklok: 31. október 2022.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 13. maí 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 30. maí 2022.