Skaftárhreppur óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, sökkla og reisingu áhalda- og flokkunarhúss á Stjórnarsandi neðan Gámavallar
Verkið felur í sér jarðvegsskipti, steypa sökkla og að reisa stálgrindarhús, einangra það og klæða að utan sem innan.
Helstu magntölur eru:
Grunnflötur húss er (14×38,4m) 537,4 m2
Gröfur 650 m3
Fylling, undir sökkla, þjappað burðarhæft 400 m3
Fylling, inn í sökkla/grunn 400 m3
Fylling, að sökklum, þjappað burðarhæft 100 m3
Sökklar, mót 340 m2
Sökklar, steinsteypa C30/37 50 m3
Steypustyrktarjárn (verkkaupi leggur til efni), vinna Heild
Reising á húsi (verkkaupi leggur til allt efni):
Innifalin öll vinna, tæki og tól sem þarf til verksins
Verkkaupi leggur til allt efni auk gönguhurða og glugga
Iðnaðarhurðir eru þó undanskildar
Hægt er að bjóða í hvern og einn verkhluta fyrir sig eða verkið í heild
Heildarverkinu skal lokið 15. júlí 2022.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka þeim tilboðum sem metin eru hagstæðust eða hafna öllum.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með fimmtudeginum 5. maí 2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við undirritaðan með tölvupósti í netfangið bygg@klaustur.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið gögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 4, 880 Kirkjubæjarklaustri fyrir kl. 11.00 föstudaginn 20. maí 2022 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.