F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Sunnufold Frosti – Aðkoma/aðgengi, útboð 15505
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið snýr að úrbótum á aðgengi að lóð leikskólans Sunnufoldar/Frosta við Frostafold 33, 112 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er austan við aðalinngang leikskólans og er stærð svæðis um það bil 260 m².
Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, yfirborðsefni, sorpgerði, snjóbræðsla, hjólastæði og -skýli. Helstu verkliðir eru jarðvinna, hellulögn og frágangur gróðursvæða.
Áætluð verklok: 31. ágúst 2022.
Verktaki þarf að samræma sína vinnu gagnvart öðrum framkvæmdaraðilum á lóðinni og taka fullt tillit til þeirra vinnu. Þar sem framkvæmdir fara fram að hluta til á leikskólatíma, skal verktaki einnig taka fullt tillit til þeirrar starfssemi. Þetta á bæði við um umferð og hávaða vegna vinnu og vinnuvéla.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00, 3. maí 2022.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15, 16. maí 2022.