Home Fréttir Í fréttum 24.05.2022 Æfingavöllur Víkings – Endurnýjun Vallarlýsingar

24.05.2022 Æfingavöllur Víkings – Endurnýjun Vallarlýsingar

74
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Æfingavöllur Víkings – Endurnýjun Vallarlýsingar, útboð 15499

Verkið felst í að útvega, setja upp og prófa flóðlýsingu á gervigrasvelli á æfingasvæði Víkings við Traðarland í Reykjavík.

Verktaki skal hanna og skila útreikningum sem sýna að lágmarkskröfur séu uppfylltar.
Verktaki skal hanna lýsinguna í samræmi við kröfur staðalsins ÍST EN 12193 um lýsingu á fótboltavelli utanhúss skv. Class II.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00, 2. maí 2022. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef  Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15, 24. maí 2022.