Úr fundargerð bæjarráðs Kópavogs þann 28.04.2022
Útboð – malbiksviðgerðir 2022-2023
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 26. apríl 2022, lagðar fram niðurstöður útboðs – malbiksviðgerðir í Kópavogi 2022-2023.
Lagt er til við bæjarráð að gengið verið til samninga við Colas Ísland hf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til að gengið verði til samninga við Colas Ísland hf. vegna malbiksviðgerða 2022-2023.