Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar óskar eftir aðilum til þátttöku í:
SALERNISHÚS – Almenningssalerni fyrir Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins í Bláfjöllum – Útboð nr. 15445.
Verkefnið fellst í útvegun á fullbúnu salernishúsi/smáhýsi til að setja niður á byggingarreit sem skilgreindur hefur verið fyrir Skíðagöngufélagið Ull í Bláfjöllum. Verkefninu og forsendum þess er lýst í útboðsgögnum og fylgiskjölum þess.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00, þriðjudaginn 26. apríl 2022.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnir sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 17. maí 2022.