Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra og Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í efnahags- og fjármálaráðuneytinu og Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslunnar undirrituðu í dag samning um 30 þúsund fermetra lóð fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila, svokallaða Björgunarmiðstöð, milli Kleppssvæðisins og Holtagarða.
Í staðinn fær borgin lóð, áþekka að stærð, við Borgarspítala í Fossvogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Þar segir að unnið hafi verið undirbúningi sameiginlegrar byggingar fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu frá því í júní í fyrra. Embætti ríkislögreglustjóra, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Landhelgisgæsla Íslands, Tollgæslan, Neyðarlínan, Slysavarnafélagið Landsbjörg og yfirstjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins munu hafa aðstöðu í Björgunarmiðstöðinni.
Heimild: Mbl.is