F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Öskjuhlíð – Perlufestin. Stígagerð, jarðvinna, útboð 15512
Verkið er fyrsti áfanginn í því verkefni að leggja upplýstan og að hluta til snjóbræddan göngustíg umhverfis Öskjuhlíðina. Í þessum áfanga er stígurinn ruddur allan hringinn, gróður og grjót fjarlægt úr stígstæðinu og fyllt gróflega í hæð undir yfirborðsfrágang.
Helstu verkþættir eru:
- Gröftur og brottakstur 330 m³
- Fleygun í stígstæði 150 m³
- Grúsarfylling 1000 m³
- Trjágróðri fargað 2.640 m²
- Endurnýting staðargróðurs 350 m²
Áætluð verklok: 31. október 2022.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:30, 22. apríl 2022.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15, 12. maí 2022.