Opnun tilboða 12. maí 2022. Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskaði eftir tilboðum í verkið „Bíldudalshöfn – Raforkuvirki 2022“.
Helstu verkþættir eru:
· Ídráttur strengja, samtenging strengja í lagnabrunni og uppsetning og tenging rafbúnaðar.
· Uppsetning og tenging aðaltöflu.
· Frárif á núverandi búnaður sem verður aflagður.
· Uppsetning og tenging masturs- og stigaljósa.
· Lagningu raflagna í masturshúsi.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2022.