F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Malbiksyfirlagnir í Reykjavik 2022 – útboð 2 – austan Reykjanesbrautar, útboð nr. 15477.
Helstu magntölur:
Malbiksfletir 87.707 m2
Malbik 9.921 tonn
Fræsing lása 2.500 m2
Verkið felst í malbikun gatna Reykjavíkur austan Reykjanesbrautar og vinnu tengdri þeirri malbikun. Um er að ræða beinar yfirlagnir á eldri slitlög gatna eða yfirlagnir á áður fræstar götur.
Búast má við að verkefni séu víða á skilgreindu athafnasvæðinu og misstór. Búast má við að verkefni verði 50-60 talsins og á stærðarbilinu 200-5000m2 hvert og að meðalstærð verkefna verði kringum 1500m2.
Lokaskiladagur verksins er 10. september 2022.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00 þann 5. apríl 2022, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 25. apríl 2022.