Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í verkið „Bíldudalshöfn – Raforkuvirki 2022“.
Helstu verkþættir eru:
· Ídráttur strengja, samtenging strengja í lagnabrunni og uppsetning og tenging rafbúnaðar.
· Uppsetning og tenging aðaltöflu.
· Frárif á núverandi búnaður sem verður aflagður.
· Uppsetning og tenging masturs- og stigaljósa.
· Lagningu raflagna í masturshúsi.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 28. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. apríl 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.