Vegagerðin óskar eftir tilboðum í þurrfræsingu, festun burðarlags með sementi, útlögn burðarlags og tvöfalda klæðingu á vegum á Norðursvæði 2022.
Áætlaðar magntölur:
Festun með sementi 12.694 m2
Þurrfræsing og jöfnun 59.316 m2
Tvöföld klæðing 72.009 m2
Efra burðarlag afrétting 8.387 m3
Verklok eru 1. september 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 28. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. apríl 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.