Hafnarstjórn Reykhólahrepps óskar eftir tilboðum í verkið „Reykhólahreppur – Karlsey, endurbygging stálþils 2022“.
Helstu verkþættir eru:
· Brjóta og fjarlæga kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
· Jarðvinna, uppúrtekt, fylling og þjöppun.
· Gera 17 m langan grjótfláa ásamt landfyllingu
· Reka niður 103 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ13-700 10/10 og AZ20-700 og ganga frá stagbitum og stögum.
· Steypa um 145 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. Nóvember 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 28. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. apríl 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.