Vegagerðin óskar eftir tilboði í mat á umhverfisáhrifum og forhönnun Reykjanesbrautar (41-04) milli Vesturlandsvegar og Holtavegar.
Um er að ræða hönnun vegstokkar í núverandi vegstæði Sæbrautar (Reykjanesbrautar), um 850m að lengd frá Vesturlandsvegi og fram yfir Kleppsmýrarveg.
Fyrir gatnamótin við Holtaveg verður aðlögun vegar og stokks lokið að núverandi vegi. Aðlaga þarf rampa á mislægum gatnamótum Sæbrautar og Miklubrautar þegar Sæbrautin er lækkuð.
Stokkurinn færi undir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs og yrðu ný gatnamót þar ofan á norðurhluta stokks með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 24. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. apríl 2022.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 3. maí 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.