Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu, breikkun, styrkingu og lögn bundins slitlags á um 4,9 km kafla á Bíldudalsvegi um Mikladal.
Helstu magntölur eru:
Bergskeringar 50.000 m3
Fyllingar 41.100 m3
Fláafleygar 9.800 m3
Ræsalögn 237 m
Styrktarlag 21.100 m3
Burðarlag 8.800 m3
Tvöföld klæðing 39.200 m2
Verkinu skal að fullu lokið 31. ágúst 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 23. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. apríl 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.