Framkvæmdafélagið Laugavegur ehf. hefur gengið frá kaupum á öllum fasteignum á svokölluðum Heklureit, sem nær til Laugavegar 168 og til og með 174.
Svæðið er enn í deiliskipulagsferli, en samkvæmt deiliskipulagstillögu er gert ráð fyrir allt að 463 íbúðum auk þjónustu og atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Gangi skipulagsvinnan vel gera forsvarsmenn félagsins ráð fyrir því að geta hafið framkvæmdir á þessu ári
Örn V. Kjartansson leiðir verkefnið, en auk hans standa fleiri fjárfestar að því. Örn hefur áður m.a. starfað sem framkvæmdastjóri FÍ fasteignafélags, framkvæmdastjóri Kringlunnar og hjá Stoðum, sem síðar varð Landic, en hann stýrði innlendum hluta félagsins sem varð grunnurinn að fasteignafélaginu Reitum.
Hekla getur verið á reitnum í þrjú ár og mögulega lengur
Reiturinn markast af fimm uppbyggingareitum sem ná frá Laugavegi 168, sem er á gatnamótum Laugavegs og Nóatúns, hinu megin við Nótatún frá starfsstöðvum Skattsins, en þar var m.a. Varmi hf. áður til húsa.
Örn segir að það sé sá reitur sem verði byrjað á og svo verið haldið áfram í austur átt að Laugavegi 170 og 172, þar sem meðal annars Galaxy pod hostel hefur verið og fleiri fyrirtæki.
Bílaumboðið Hekla er svo með höfuðstöðvar sínar, verkstæði og söluplan á Laugavegi 174. Örn segir að Hekla geti áfram verið á reitnum í allt að þrjú ár með möguleika á framlengingu, en tímalengdin fari eftir áformum félagsins um að flytja sig í burtu.
Vonast til að skipulagsvinna klárist í sumar
Örn segir að vonir standi til með að nýtt deiliskipulag verði samþykkt í sumar og að þá geti niðurrif á fyrstu reitunum hafist og uppbygging í kjölfarið með haustinu. „Við hyggjum hefja framkvæmdir eins fljótt og auðið er.
“ Spurður hvort eitthvað af núverandi húsnæði verði áfram nýtt eða hvort rífa eigi allt og byggja á ný segir hann að gert sé ráð fyrir að allar núverandi fasteignir á reitnum víki.
Hann segir að samkvæmt núverandi deiliskipulagshugmynd sé gert ráð fyrir að meðalstærð íbúða verði um 85 fermetrar, en einnig er ákveðið hlutfall íbúða sem eigi að vera tveggja-, þriggja-, fjögurra- og fimmherbergja.
„Það á því að verða talsverð fjölbreytni í stærð íbúða þarna,“ segir hann. Á fyrstu tveimur reitunum er gert ráð fyrir annars vegar 91 íbúð og hins vegar 115 íbúðum. Örn segir að almennt sé horft til þess að byggingarnar verði sjö hæða, nema að hluta til á reit A, eða við Laugaveg 168, þar sem tillagan gerir ráð fyrir að hluti reitsins verði með átta hæðir.
Í stjórn félagsins ásamt Erni eru þeir Davíð Másson og Halldór Hafsteinsson, en þeir hafa meðal annars verið kenndir við Atlanta og Avion flugfélögin. Örn segir jafnframt hóp bæði innlendra og erlendra fjárfesta standa á bak við verkefnið, en ekki er enn hægt að sjá hluthafa í gögnum Skattsins. Þar kemur þó fram að Örn er skráður fyrir tæplega 35% hlut í Framkvæmdafélaginu Laugavegi.
Heimild: Mbl.is