Opnun tilboða 28. janúar 2022.
Tilboð í eftirlit og ráðgjöf með endurbyggingu Snæfellsnesvegar (54) á um 5,4 km kafla í Hörðudal.
Innifalið í vekinu er bygging tveggja brúa, 43 m langrar brúar yfir Skrautu og 52 m brúar yfir Dunká.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð 30. júní 2023.
Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 25. janúar 2022, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í útboðinu.
Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.
Verðtilboð bjóðenda opnuð 28. janúar 2022.