Home Fréttir Í fréttum Mótmæla fyrirhuguðum landfyllingum í Skerjafirði

Mótmæla fyrirhuguðum landfyllingum í Skerjafirði

112
0
Mynd: Reykjavík
Íbúar í Skerjafirði og Landvernd hafa áhyggjur af að ásýnd svonefndar Shell-fjöru í Skerjafirði spillist og búsvæði fugla og fleiri dýra verði ógnað ef af landfyllingum verður á svæðinu.

Fjölmargar athugasemdir bárust áður en athugasemdafrestur rann út um þá fyrirætlun Reykjavíkurborgar að gera 4,3 hektara landfyllingu vegna nýs íbúðahverfis sem rísa á við enda Reykjavíkurflugvallar.

<>

Um þetta er fjallað í Fréttablaðinu í dag og vitnað í kynningu borgarinnar þar sem fram kemur að strandlengjan verði þannig mótuð að hún líkist náttúrulegri strönd. Þannig geti því myndast leirur í stað þeirra sem raskist við landfyllinguna.

Landvernd segir í athugasemd að útkoman verði manngert grjótmannvirki og erfitt sé að færa rök fyrir samfélagslegri nauðsyn þess að spilla leirum sem lítið sé eftir af á höfuðborgarsvæðinu.

Reykjavíkurborg segir að landfyllingin sé nauðsynleg svo að nýja hverfið nái þeirri stærð sem þarf til að það verði sjálfbært.

Heimild: Ruv.is