Isavia Innanlandsflugvellir óska eftir tilboði í verk sem felst í því að reisa vélaskemmu á flugvellinum á Bíldudal.
Steypa skal sökkul og plötu, leggja frárennslislagnir í grunn og reisa skemmu sem verkkaupi leggur á Bíldudal.
Leggja skal neysluvatn að skemmunni frá stofnlögn flugvallarins. Ídráttarrör skal leggja frá brunni við horn bílgeymslu að rafmagnsinntaki.
Auglýst: | 25.01.2022 kl. 12:00 |
Opnun tilboða: | 14.02.2022 kl. 13:00 |
Nánari upplýsingar er að finna á útboðsvef Isavia