F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Dúkalagnir 2022 í hverfum 1,2,3 og 4,5 í fasteignum Reykjavíkurborgar útboð nr. 15393
Verk þetta felst í rifi og dúklagningu linoleumdúka og vinyldúka, í 18 fasteignum Reykjavíkurborgar.
Fasteignirnar eru: Austurbæjarskóli, Brúarskóli – Vesturhlíðarskóli, Háteigsskóli, Melaskóli, Bjartahlíð – Hamraborg, Hlíð – Hlíðaborg, Lindargata 59 þjónustm., Tjarnaborg, Borgarleikhús, Álftamýrarskóli, Breiðagerðisskóli, Breiðagerðisskóli – Staðarborg, Hvassaleitisskóli, Langholtsskóli, Laugarnesskóli, Garðaborg, Sunnuás – Hlíðarendi, Vinagerði.
Helstu magntölur eru:
Linóleumdúkar: 3.179 m2
Vinyldúkar: 92 m2
Lokaskiladagur verksins er 31. desember 2022.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 24. janúar 2022. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 10. febrúar 2022.