Verkið felur í sér rif innanhús og endurinnréttun 2. hæðar Suðurgötu 4, Siglufirði. Gert er ráð fyrir að lyfta komi í húsið. Nánari lýsing á verkinu er að finna í verklýsingu.
Hægt er að nálgast útboðsgögn rafrænt á netfangið armann@fjallabyggd.is
Tilboði skal skila á skrifstofu Fjallabyggðar Gránugötu 24, Siglufirði, í lokuðu umslagi sem sýni nafn bjóðanda, merktu:
“Tilboð, Suðurgata 4, breytingar á 2. hæð, Fjal – 2022 – 1”
Opnunartími tilboða: þriðjudaginn 25. janúar 2022 kl. 14:00 á skrifstofu Fjallabyggðar.