Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna – Raflagnir
Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna – Raflagnir
Verkið felst í að þjónusta tilfallandi raflagnavinnu á vegum veitarfélagsins. Garðabæ hefur verið skipt upp í þrjú svæði og velja bjóðendur hvaða svæði þeir bjóða í.
Helstu magntölur eru:
- Tímavinna, 2.150 klst. á samningstímanum fyrir hvert svæði
Útboðsgögn verða einungis aðgengileg á rafrænu formi hér á vefsíðu Garðabæjar.
Samningstími er tvö ár með mögulegum framlengingum tvisvar sinnum til tveggja ára í senn.
Tilboð skal afhenda í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 1. febrúar 2022
Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar.