Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í smíði og uppsetningu á flotbryggjum í Grundarfjarðarhöfn.
Helstu magntölur:
· Taka upp núverandi bryggjur
· Smíða og setja upp 2 stk. 15X4 m flotbryggjur
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1.júní 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 3. janúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. janúar 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign