Home Fréttir Í fréttum Vestmannaeyjahöfn: Geisli bauð lægst í raforkuvirki á skipalyftukanti

Vestmannaeyjahöfn: Geisli bauð lægst í raforkuvirki á skipalyftukanti

104
0
Frá framkvæmdum við skipalyftukant. Ljósmynd/TMS

Vestmannaeyjahöfn óskaði nýverið eftir tilboðum í raforkuvirki á skipalyftukanti. Alls buðu fimm fyrirtæki í verkið.

<>

Helstu verkþættir eru að smíða rafmagnstöflu, draga strengi í ídráttarrör, ganga frá tenglum í bryggjuskápum og setja upp ljóskastara og neyðarljós í stigum. Fram kom í útboðsgögnum að verkinu skuli lokið eigi síðar en 31.júlí 2022.

Líkt og áður segir buðu fimm fyrirtæki í verkið og bauð Geisli lægst og var tilboð Geisla undir kostnaðaráætlun.

 Bjóðandi  Tilboð kr.  Hlutfall  Frávik þús.kr.
 Rafal ehf., Hafnarfirði  42.418.426 240,8 25.283
 Rafmálafélagið ehf., Kópavogi  29.749.486 168,9 12.614
 Orkuvirki ehf., Reykjavík  29.422.603 167,1 12.287
 Árvirkinn ehf., Selfossi  22.106.867 125,5 4.972
 Áætlaður verktakakostnaður  17.612.000 100,0 477
 Geisli / Faxi ehf., Vestmannaeyjum  17.135.199 97,3 0

 

Geisli / Faxi ehf. lagði einnig inn frávikstilboð. Heimild/Vegagerðin.

Heimild: Eyjar.net