Home Fréttir Í fréttum 12.01.2022 Hafnarfjarðarbær. Hraunvík – stofnræsi

12.01.2022 Hafnarfjarðarbær. Hraunvík – stofnræsi

255
0
Mynd: Stöð 2/Björn Sigurðsson

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í gatnagerð, fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir vegna fyrirhugaðra framkvæmda stofnræsi frá Kapelluhrauni að Hraunvík

<>

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu „TendSign“ frá og með þriðjudeginum 14. desember og skal tilboðum skilað rafrænt í því kerfi fyrir fimmtudaginn 12. janúar 2022.

Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Helstu magntölur eru:

  • Lagnaskurðir fráveitu 1.700 m
  • Ø500 ræsi 1.160 m
  • Ø400 ræsi 525 m
  • Rúmmál uppúrtektar 33.000 m3
  • Rúmmál klappar 29.000 m3
  • Aðfluttar fyllingar 1.000 m3
  • Skurður veitustofnanna 190 m

Verklok eru 30. september 2022 með áfangaskilum 15. maí 2022.