Framkvæmdafélagið Arnarhvoll átti hæsta tilboð í allar lóðir á nýju byggingasvæði í Vetrarmýri í Garðabæ og bauð tæplega 3,3 milljarða í lóðirnar.
Í þessum fyrsta áfanga byggðar í Vetrarmýri var boðinn út byggingarréttur á um 26 þúsund fermetum af fjölbýli og 26 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum reitum.
Tilboð frá 13 fyrirtækjum
Á fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær gerðu fulltrúar fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka grein fyrir tilboðum sem bárust. Alls gerðu 13 fyrirtæki tilboð í allar lóðirnar eða einstaka áfanga.
Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka að hefja viðræður og leita samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvol sem er hæstbjóðandi samtals í alla reiti.
Heimild: Mbl.is