„Við gerðum þetta mjög svipað í Breiðholtinu í fyrra, kynntum vinnuhugmyndir og fengum að heyra álit hjá íbúum.
Við höfum góða reynslu af þessari aðferð,“ segir Ævar Harðarson, deildarstjóri Hverfisskipulags Reykjavíkur.
Nú er opið fyrir netsamráð á vef Reykjavíkurborgar þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að segja skoðun sína á vinnutillögum fyrir hverfisskipulag Háaleitis-Bústaða.
Opið er fyrir netsamráðið til og með 15. desember. Einnig er hægt að senda inn athugasemdir á netfangið skipulag@reykjavik.is.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær eru skiptar skoðanir um áform um þéttingu byggðar við Bústaðaveg.
Íbúasamtök Bústaða- og Fossvogshverfis hafa boðað til íbúafundar á miðvikudagskvöld í Réttarholtsskóla og boðið þangað Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Eyþóri Arnalds, oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Áformin fela í sér að 17 nýjar byggingar verði byggðar beggja vegna Bústaðavegar í námunda við verslunarmiðstöðina Grímsbæ.
Um 130-150 íbúðir geti verið í þessum byggingum á efri hæð og atvinnustarfsemi og þjónusta á götuhæð. Sökum landhalla sé unnt að hafa bílakjallara undir byggingunum.
Bílastæðum á svæðinu geti því fjölgað úr 400 í að minnsta kosti 500, samkvæmt kynningu á áformunum.
Heimild: Mbl.is