Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í EES útboði nr. 15329:
Skönnun verkfræðiteikninga
Almennt um verkið
Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar f.h. Þjónustu- og nýsköpunarsviðs óskar eftir tilboðum í skönnun á verkfræðiteikningum byggingafulltrúa Reykjavíkur, frágang í sýrufríar skjalaöskjur (sem kaupandi útvegar) og skráningu í geymsluskrá og geymslu á meðan á verki stendur.
Um er að ræða um það bil eina milljón teikninga sem eru flestar í stærð A1 og A2. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 11:00 þann 19. nóvember 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 22. desember 2021.