Aldey Unnar Traustadóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, tók í síðustu viku fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili á Húsavík.
Stungan markar upphaf framkvæmdanna en Húsheild ehf. sér um jarðvegsframkvæmdir.
Heimilið verður alls 4.400 fermetrar að stærð. Ríkið greiðir 85% af framkvæmdakostnaði við bygginguna, en sveitarfélögin Norðurþing, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur og Tjörneshreppur það sem upp á vantar.
Áætlaður kostnaður er um þrír milljarðar.
Heimild: Mbl.is