Home Fréttir Í fréttum Loftleiðareiturinn gjörbreytist

Loftleiðareiturinn gjörbreytist

132
0
„Við leggjum til að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni,“ sagði framkvæmdastjóri þróunarsviðs Reita kíminn á fundi Reykjavíkurborgar og vísaði í hönnunina á almenningsgarðinum. Mynd tekin úr fjárfestakynningu Reita.

Reitir skoða að bæta við byggingarreitum á Loftleiðareitnum. Gert er ráð fyrir íbúðum, matvöruverslun og líkamsrækt á svæðinu.

<>

Loftleiðareiturinn, þar sem finna má höfuðstöðvar Icelandair og Natura hótelið, mun taka miklum breytingum á næstu árum ef skipulagstillaga Reita gengur í gegn.

Hún gerir ráð fyrir íbúðauppbyggingu, matvöruverslun, borgarlínustöð og svo mun almenningsrými koma í stað bílastæðanna fyrir framan innganginn á hótelinu og skrifstofunum.

Reitir undirrituðu 2,3 milljarða króna kaupsamning við dótturfélag Icelandair um kaup á fasteigninni að Nauthólsvegi 50, þar sem skrifstofur flugfélagsins eru til húsa.

Icelandair verður áfram í skrifstofuhúsnæðinu, sem er 6.474 fermetrar að stærð, næstu tvö árin en hyggst svo flytja höfuðstöðvarnar á Flugvelli í Hafnarfirði árið 2024.

Mynd tekin af fundi Reykjavíkurborgar í sumar um grænar samgöngur.

Friðjón Sigurðarson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Reita, fór yfir hugmyndir að breytingu á reitnum á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í sumar. Að hans sögn stefna Reitir á að hótelið verði áfram á sínum stað á Loftleiðareitnum.

Hins vegar sé til skoðunar að skrifstofurými Icelandair fari í önnur not, þá mögulega í svokallaðar „co-living“ íbúðir þar sem íbúar deila rýmum á borð við þvottahúsi, eldhúsi og vinnuaðstöðu.

Friðjón sagði að meðal annars væru hugmyndir um að koma upp matvöruverslun, líkamsrækt og kaffihúsi á svæðinu. Hann birti jafnframt eftirfarandi mynd þar sem sýnt er hvernig aðlaga mætti lóðamörkin til að koma fyrir þremur byggingarreitum.

Hugmyndir Reita og Trípólí arkitekta fyrir Metrolóðina. Mynd tekin úr fjárfestakynningu Reita.

Úr borgurum í íbúðablokk

Reitir hyggjast einnig breyta Suðurlandsbraut 56, þar sem Metro hamborgarastaðurinn er nú til húsa og McDonalds var á árum áður, í íbúðablokk og atvinnuhúsnæði. Stefnt er að því að íbúðirnar verða 87 talsins og að atvinnurýmið verði um 1.200 fermetrar.

Í fjárfestakynningu Reita fyrir þriðja ársfjórðung var einnig fjallað um Hallarmúla 2, sem stendur á bak við Hilton Reykjavik Nordica hótelið sem Reitir eiga líka.

Til skoðunar er að byggja fjölbýlishús á reitnum en í dag er hann að mestu nýttur í bílastæði en einnig er þar að finna verslun Fjallakofans.

Heimild: Vb.is