Home Fréttir Í fréttum Allt að verða klárt á nýju hóteli við Austurvöll

Allt að verða klárt á nýju hóteli við Austurvöll

193
0
NASA salurinn hefur verið rifinn og endurbyggður. STÖÐ 2/ARNAR

Það er allt að verða klárt í nýrri hótelbyggingu Icelandair hótelanna við Austurvöll sem áætlanir reikna með að hefji starfsem í vor. Byggingaframkvæmdirnar voru mjög flóknar enda þurfti að sameina fimm byggingar í eina.

<>

Svona var umhorfs í gamla Landsímahúsinu við Austurvöll þegar við litum þar inn fyrir rúmum þremur árum þegar framkvæmdir við hótelið voru á byrjunarstigi. Síðan þá hefur viðbygging frá því um 1970 verið rifin og ný hús byggð í staðinn og NASA salurinn sömuleiðis rifinn og endurbyggður.

Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, stjórnarmaður í Lindarvatni ehf.
STÖÐ 2/ARNAR

Klukkan er farinn að ganga á austurgafli á nýju hóteli Icelandair við Austurvöll og það styttist í að þetta stóra verkefni klárist. Guðmundur Tryggvi Sigurðsson stjórnarmaður í Lindarvatni ehf. Sem ser um byggingu hótelsins segir hundrað fjörtíu og átta herbergi og ýmsa aðra þjónust fyrir gesti og gangandi verða á hótelinu.

„Já þetta er flókið verkefni. Hérna voru fimm byggingar sameinaðar. Gamli Kvennaskólinn var fluttur af grunni sínum og steyptur nýr undir hann og flutt. NASA salurinn sjálfur sem við horfum á hérna er endurbyggður alveg í sinni upprunalegu mynd.

Það er ekki eitt gamalt efni í honum og hann er svo færður niður um eina hæð og byggð átján hótelherbergi fyrir ofan hann,“ segir Guðmundur Tryggvi.

STÖÐ 2/ARNAR

Vel sé hins vegar hugsað fyrir hljóðvist þannig að hótelgestir verði ekkert varir við það þótt spiluð væri dúndrandi rokktónlist í salnum. Í kjallara undir mjög stóru anddyri í nýbyggingu hótelsins verður líkamsræktar- og afslöppunaraðstaða þar sem ekki ætti að væsa um neinn.

Þar má meðal annars finna með stærstu heitum pottum á Íslandi. En eins og allir vita eru öll helstu vandamál heimsins leyst í heitum pottum. Í þessum potti gætu átt sér stað heldur betur fjölmennar umræður.

STÖÐ 2/ARNAR

Hvað eruð þið langt komnir með þetta stóra verkefni?

„Þetta verkefni er á lokametrunum. Við köllum það að vera í innansleikjunum núna. Það er bara lokafrágangur eftir. Öll hótelherbergi eru tilbúin og það eru svona ýmis stoðrými sem verið er að klára frágang í,“ segir Guðmundur Tryggvi.

Hann kemur að byggingu hótelsins fyrir hönd Lindarvatns ehf. en hefur áður komið að uppbyggingu hótela hjá Icelandair Group. Hann hóf reyndar starfsævina barnungur sem sendill hjá Pósti og síma.

„Já, ég var skeytasendill í þessu húsi þegar ég var tólf ára. Það er gaman að sjá hvernig þetta hefur tekist til. Það er mikil prýði af verkefninu fyrir Austurvöll,“ segir Guðmundur Tryggvi Sigurðsson.

Heimild: Visir.is