Borgarráð samþykkti á fundi sínum nú á fimmtudag að veita heimild til þess að ganga frá uppgjöri um eignina Starhaga 1 sem áður var staðsett á Laugavegi 36.
Árið 2014 gerðu Reykjavíkurborg og Minjavernd samning um samvinnu við flutning, endurgerð og sölu hússins.
Nú sjö árum síðar hefur húsinu verið komið fyrir á varanlegum stað á Starhaga 1 og það verið endurgert.
Hlutur borgarinnar 27 milljónir
Heildarkostnaður verkefnisins hljóðar upp á rétt tæplega tvö hundruð milljónir og er mismunurinn milli kostnaðar og söluverðs hússins rúmar fimmtíu milljónir.
Heildarhlutur og kostnaður Reykjavíkurborgar í verkefninu er þá rúmar 27 milljónir. Eins og áður segir var samþykkt í borgarráði að klára uppgjör við Minjavernd vegna verkefnisins.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna lögðu fram bókun um málið. Þar segir meðal annars að „víðtæk samstaða“ hafi verið á sínum tíma um að endurgera húsið.
Slíkar framkvæmdir feli þó ávallt í sér óvissu sem „skýri það hvers vegna samið var um að deila hagnaði eða tapi eftir því hver niðurstaðan yrði“.
Gríðarhár kostnaður á hvern fermetra
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins en lögðu þó fram bókun. Þar var bent á að enn á ný væri viðgerðarkostnaður borgarinnar „gríðarlega hár“.
Fram kom einnig í bókuninni að kostnaðurinn væri vel á aðra milljón á hvern fermetra að meðtöldum lóðarkostnaði, sem væri mun hærri en kostnaður við nýbyggingu.
Heimild: Mbl.is