F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Sjóvarnargarður við Ánanaust, útboð nr. 15159.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 12. október 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 5. nóvember 2021.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í upprifi og endurbyggingu sjóvarnargarðs við Eiðsgranda. Um er að ræða ca. 480 m. langan garð sem nær frá hringtorgi á mótum Hringbrautar og Ánanausta í vestri að kverk landfyllingar við Fiskislóð 1 í austri.
Upprifið efni/stórgrýti verður flokkað og endurnýtt, einnig verður aðflutt efni frá lagerum notað í verkið.
Nálægir lagerar eru staðsettir við Eiðsgranda, Ánanaust og á Fiskislóð, en einnig eru grjótlagerar í Gufunesi og á Álfsnesi.
Verktaki þarf einnig mögulega að geta boðið uppá efni í garðin ef á þarf að halda. Kröfur eru gerðar til verktaka um að þeir hafi unnið sambærileg verk og hafi starfsfólk sem hafi reynslu af hleðslu sjóvarna.