Í húsnæðisáætlun sem Sveitarfélagið Skagaströnd birti nýlega kemur meðal annars fram að þar þurfi að byggja 2-4 íbúðir á ári fram til ársins 2026 til að uppfylla þörf fyrir nýtt íbúðarhúsnæði og koma á nauðsynlegu jafnvægi.
Stendur nauðsynlegri þróun fyrir þrifum
Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri, segir að ungir Skagstrendingar sæki í auknum mæli að flytja heim og þá vanti fólk á staðinn til að sinna auknum atvinnutækifærum.
„Ég held að það sé sama staða hér og á mörgum öðrum stöðum, að það stendur okkur fyrir þrifum að geta ekki veitt fólki fullnægjandi húsnæðiskost.
Við getum tæplega aukið mikið við atvinnuþróun á svæðinu ef við erum ekki með húsnæði fyrir fólk til þessa að geta fjölgað þessum störfum.“
Felldu niður gatnagerðargjöld á 14 lóðum
Eins og víðar í dreifbýli er söluverð á íbúðarhúsnæði lægra en byggingarkostnaður sem dregur úr áhuga verktaka á að byggja íbúðir.
Til að liðka fyrir felldi sveitarfélagið niður gatnagerðargjöld á 14 lóðum við tilbúnar götur og stendur það tilboð út kjörtímabil núverandi sveitarstjórnar.
Þá eru viðræður við leigufélagið Bríeti um byggingu leiguhúsnæðis.
Bankarnir tregir til að veita húsnæðislán í dreifbýli
Enn eitt sem dregur úr möguleikum á nýbyggingum segir Alexandra vera áhugaleysi bankanna á að veita húsnæðislán til fólks í dreifbýli.
„Það er svosem það sem hefur verið erfiðast fyrir fólk. Það nær ekki að fjármagna ef það vill fara í einhverjar framkvæmdir.
Og það er málefni sem er ekki nýtt af nálinni og eitthvað sem þarf að halda áfram að þrýsta á að taki einhverjum breytingum.
Eða það séu einhver önnur úrræði fyrirfólk sem vill fara í uppbyggingu á landsbyggðinni.
En það er ekki greiður aðgangur að fjármagni, það er alveg ljóst.“
Heimild: Ruv.is