Stefnt er að því að um 460 íbúðir rísi á Hlíðarenda í stað þess sem átti að verða stærsta hótel landsins.
Félagið S8 ehf. hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að breyta deiliskipulagi á Hlíðarenda á reitum G, H og I svo þar megi rísa um 460 íbúðir í stað atvinnuhúsnæðis.
S8 ehf., eigandi hluta svæðisins, hafði uppi hugmyndir um að reisa þar stærsta hótel landsins, alls 446 herbergi á vesturenda Hlíðarendasvæðins.
Byggja átti 17.500 fermetra hótel á fjórum hæðum auk kjallara úr einingum frá Kína.
Í ársreikningi S8, fyrir árið 2020 er verðmæti lóðar félagsins á Hlíðarenda bókfært á tæplega 3 milljarða króna. Félagið er í eigu Jóhanns Halldórssonar fjárfestis.
Samþykkt var að auglýsa breytingu deiluskipulagsins á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar á miðvikudaginn og málinu vísað til borgarráðs.
Fulltrúar meirihluta Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata í ráðinu fögnuðu tillögunni og bentu á að gert væri ráð fyrir að 20% íbúðanna verði leigu eða búseturéttaríbúðir og að Félagsbústaðir eigi forkaupsrétt á 5% íbúðanna.
Þá er ánægja hjá meirihlutanum um að viðmið sé fest að lágmarki skuli vera 2 hjólastæði á íbúð.
Heimild: Vb.is