Sumarhús hjónanna Tinu Dickow og Helga Hrafns Jónssonar við Þingvallavatn en nú til umfjöllunar í bandaríska tímaritinu Wall Street Journal.
Þar er rætt við hina dönsku Dickow um húsið og segir hún það algjöra paradís.
Arkitektarnir Kristján Eggertsson og Kristján Örn Kjartansson hjá arkitektastofunni KRADS hönnuðu húsið en Smartland ræddi við þá um húsið í byrjun þessa árs.
Húsið prýddi auk þess forsíðu fyrsta tölublaðs tímaritsins Bo Bedre á þessu ári.
Kristján Eggertsson sagði í viðtalinu að þeir hefðu lagt mikla áherslu á að aðlaga húsið sem best landslaginu.
Heimild:Mbl.is