Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir hafnar við stækkun gagnavers Etix Everywhere Borealis á Blönduósi

Framkvæmdir hafnar við stækkun gagnavers Etix Everywhere Borealis á Blönduósi

257
0
Framkvæmdir hafnar við hlið núverandi gagnavera. Ljósm. Höskuldur B. Erlingsson

Framkvæmdir við stækkun gagnavers Etix Everywhere Borealis á Blönduósi eru hafnar.

<>

Um er að ræða byggingu á nýju húsi sem hannað er til að hýsa fjölbreyttar þarfir viðskiptavina gagnaversins á öruggan og umhverfisvænan máta.

Munu snjallnetslausnir verða nýttar til að tryggja rekstraröryggi og auka nýtni orkuflutnings.

Gagnaver Etix Everywhere Borealis

Etix Everywhere Borealis leggur áherslu á rekstur sjálfbærra gagnavera á heimsmælikvarða með lágmarks kolefnisfótspori.

Það er gert með því að nýta umhverfishita til kælingar og keyra tölvubúnað með endurnýjanlegri orku í gegnum öruggt flutningskerfi raforku á Íslandi.

Stækkun og vöxtur á svæðinu er háður afhendingu á orku og er þessi framkvæmd liður í því að fylgja afhendingaráætlun sem mun eiga sér stað í áföngum.

Áætlanir félagsins gera ráð fyrir frekari stækkun á komandi árum. “Það er okkar bjargfasta trú að Blönduós sé einstakt svæði til uppbyggingar á gagnaversþjónustu.

Samspil nágrennis og landfræðilegra þátta við Blönduvirkjun,ásamt framsýni og stefnu sveitarfélagsins gerir svæðið eitt það besta sem völ er á fyrir slíka uppbyggingu.

Ísland er góður staður fyrir aðila sem leita eftir öruggum og umhverfisvænum gagnaverslausnum. Við teljum okkur vera að mæta þessum kröfum með gagnaverinu á Blönduósi”, segir Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Etix Everywhere Borealis.

Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Etix Everywhere Borealis

Áætlað er að framkvæmdum ljúki í lok þessa árs en það hefur reynst félaginu vel að vinna með öflugum verktökum á svæðinu.

Unnið hefur verið með hönnuðum og sérfræðingum frá EcoCooling, Arkís, Verkís og Beka við útfærslu á gagnaverinu.

“Það er mikil ánægja innan okkar raða að geta ráðist í stækkun á gagnaverinu á Blönduósi sem er eina stóra gagnaverið sem rekið er utan suðvestur horns landsins.

Staðsetningin er kjörin til uppbyggingar og býður upp á mikil tækifæri í umhverfisvænum og öruggum gagnaverslausnum. Samstarfið við sveitarfélagið hefur verið til fyrirmyndar og stefnum við að frekari vexti á svæðinu á komandi árum”, segir Björn.

Heimild: Huni.is