Home Fréttir Í fréttum Ístak reynir að losa starfsmenn úr sóttkví í Nuuk

Ístak reynir að losa starfsmenn úr sóttkví í Nuuk

164
0
Mynd: Danmarks Radio
60 iðnaðarmenn, sem eru að byggja nýjan skóla í Nuuk á Grænlandi á vegum íslenska verktakafyrirtækisins Ístak, hafa verið sendir í sóttkví eftir að samstarfsmaður þeirra greindist með kórónuveiruna.
Þetta staðfestir Reynir Viðarsson, yfirverkfræðingur hjá verktakafyrirtækinu, í samtali við grænlenska ríkisútvarpið.

Haft er eftir Reyni að starfsmennirnir sem sendir voru í sóttkví hafi allir fengið neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku.

<>

Hann segir að fyrirtækið hafi leitað til yfirvalda um að leyfa starfsmönnunum að snúa aftur til starfa þannig að hægt væri að reisa girðingu í kringum byggingasvæðið.  Þeirri beiðni hafi verið hafnað.

Engu að síður hafi fyrirtækið farið þess á leit að ákvörðunin verði endurskoðuð til að iðnaðarmennirnir geti snúið til starfa áður en fyrirhugaðri sóttkví þeirra á að ljúka þann 23. september.

Skólinn í Nuuk verður sá stærsti á Grænlandi og á að vera tilbúinn árið 2023.

Áætlaður kostnaður við verkið er rúmlega 11 milljarðar króna en skólanum er ætlað að leysa af hólmi tvo gamla skóla.

13 greindust með kórónuveiruna á Grænlandi í gær, þar af 11 í Nuuk.  Tveir greindust í Sisimut en þeir voru báðir að koma frá Nuuk. Nú eru 100 í einangrun á Grænlandi með virkt smit.

Heimild: Ruv.is