Húsnæði undir fyrirhugaðar bílasölur rís nú með methraða við Krókháls 7 í Reykjavík. Húsin eru úr samsettum timbureiningum og hvíla á steyptum sökkli.
Á lóðinni var meðal annars kjarr til norðurs sem var rutt og var hún síðan grófjöfnuð fyrir malbikun.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er verkið á áætlun og er áformað að malbika lóðina á næstu vikum og opna bílasölurnar um miðjan október.
Þar verða hundruð bíla til sýnis og hefur félagið K7, sem fer með verkefnið, meðal annars gengið frá samningum við Öskju – notaða bíla, Bílaland BL, Bílabankann og Bílamiðstöðina um að vera með söluhús þar.
Lóðin er um 23 þúsund fermetrar en tugþúsundir bíla fara þar fram hjá dag hvern á leið um Vesturlandsveg og Suðurlandsveg. Bílasala tók við sér á árinu og var jafnvel rætt um skort á nýjum bílum.
Heimild: Mbl.is