F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Kirkjusandur – Yfirborðsfrágangur og gatnamót við Borgartún, útboð nr. 15302
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 14. september 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 29. september 2021.
Lýsing á verkefninu:
Um er að ræða vinnu við gerð gatnamóta Hallgerðargötu við Borgartún ásamt því að ljúka við yfirborðsfrágang sunnan megin við Hallgerðargötu.
Um er að ræða:
- Jarðvinnu vegna tengingar Hallgerðargötu við Borgartún
- Frágangur burðarlags og mulnings undir malbik í götum, stéttum og hjólastíga
- Að koma fyrir niðurföllum við gatnamótin
- Uppsetningu og færslu götuljósastólpa
- Malbikun gatna og hjólastíga
- Að steypa gangstéttar við Borgartún
- Að helluleggja gangstéttar, upphækkun og innkeyrslur
- Gerð kantsteina
- Gerð gróðurbeða og gróðursetning
Helstu magntölur eru:
- Styrktarlag 700 m3
- Burðarlag 650 m2
- Mulningur 1.000 m2
- Kantsteinar 1.200 m
- Hellulögn 1.400 m2
- Malbik 1.500 m2
- Uppsetning ljósastólpa 11 stk.