F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
KR-Knattspyrnufélag Reykjavíkur, Frostaskjól í Reykjavík. Endurnýjun gervigrass 2021, útboð nr. 15296
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 8. september 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 23. september 2021.
Lýsing á verkefninu:
Verkið felst í að endurnýja gervigrasið á æfingar- gervigrasvelli KR í Frostaskjóli í Reykjavík. Stærð 73 x 111 m.
Fjarlægja skal núverandi gervigras, sand og gúmmíkurl. Núverandi fjöðrunarlag verður notað áfram.
Það er skilyrði að völlurinn geta fengið FIFA Quality Pro úttekt.