Athygli er vakin á að lóðir við götuna Ufsasund á iðnaðarsvæðinu við Eyjabakka eru lausar til umsóknar.
Nánari upplýsingar er að finna í kortasjá Grindavíkur.
Haka þarf í lausar lóðir til úthlutunar hægra megin á síðunni til að kalla upplýsingarnar fram.
Nánari upplýsingar um lóðir er að finna í deiliskipulagi fyrir svæðið sem má sjá með því að smella hér.
Skipulagsnefnd fer yfir innkomnar lóðarumsóknir á atvinnu- og iðnaðarlóðum og gerir tillögu að afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Samkvæmt reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun skal umsókn um lóð berast fyrir hádegi 15.hvers mánaðar. Næsti fundur skipulagsnefndar er áætlaður þann 20.september næstkomandi
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62 eða senda á netfangið atligeir@grindavik.is
Lóðarúthlutunarreglur Grindavíkurbæjar má finna með því að smella hér.
Frekari upplýsingar veitir Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, í síma 420-1100 og í gegnum netfangið atligeir@grindavik.is.
Á mynd hér fyrir ofan hefur verið dreginn blár kassi um þær lóðir sem eru hér auglýstar.
Heimild: Grindavík.is