Um hundrað leikskólabörn á Hvolsvelli komu saman með skóflurnar sínar í vikunni og tóku fyrstu skóflustungurnar af nýjum leikskóla.
Leikskólinn verður með tíu deildum og fyrir um hundrað og áttatíu börn. Kostnaðurinn við bygginguna verður um einn milljarður króna.
Það var mikil spenna og eftirvænting á Hvolsvelli þegar leikskólabörn á leikskólanum Örk komu gangandi með starfsfólki á staðinn þar, sem nýi leikskólinn verður byggður.
Eftir stutt ávörp sveitarstjóra og leikskólastjóra tóku leikskólabörnin sig til og tóku skóflustungur af nýja leikskólanum með aðstoð forsvarsmanna sveitarfélagsins.
Mikil ánægja er hjá starfsfólki leikskólans að nú eigi að fara að byggja nýjan og glæsilegan leikskóla á Hvolsvelli.
„Ég er þakklát fyrir að starfsfólk leikskólans fékk að hafa rödd í hönnunarferlinu og það var hlustað á okkur því það skilar sér svo sannarlega í góðum starfsaðstæðum,“ segir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir leikskólastjóri.
„Þetta verður bara einn af stærri leikskólum á landinu og glæsilegur í alla staði.Gamli leikskólinn hjá okkur er löngu sprungin, það er bara þannig og við höfum verið með leikskóla starfsemi á fleiri en einum stað, þess vegna erum við að fara í þessa nýju byggingu,“ segir Lilja Einarsdóttir, sveitarstjóri Rangárþings eystra.
Pláss verður fyrir 180 börn á nýja leikskólanum, sem verður 10 deilda. Lilja segir að það sé verið að horfa til framtíðar með byggingunni enda mikil íbúafjölgun í Rangárþingi eystra og mikið af ungu fólki og fjölskyldufólki að flytja í sveitarfélagið.
„Það er bullandi gangur í öllu hér, við verðum bara að halda vel á spöðunum. Vonandi geta börnin mætt í nýja leikskólann eftir eitt og hálft ár en hann mun kosta um einn milljarð króna“, bætir Lilja við.
Leikskólabörnin nýttu tækifærið við upphaf framkvæmda við nýja leikskólann og tóku lagið fyrir viðstadda.
Heimild: Visir.is