Veitur, Gagnaveita Reykjavíkur, Míla og Reykjavíkurborg óska eftir tilboðum í verkið „Framnesvegur – Sóleyjargata – Ánanaust. Endurnýjun lagna“.
Verkið er í aðalatriðum fólgið í því að endurnýja og leggja nýlagnir veitna, þ.e.s háspennu- og lágspennulagnir ásamt hitaveitulögnum og að leggja nýjar fjarskiptalagnir Mílu og Gagnaveitu Reykjavíkur.
Niðurtekt og uppsetning ljósastaura Reykjavíkurborgar ásamt lögn götuljósastrengs er einnig fólgið í verkinu svo og tenging nýrrar 315 mm vatnsveitu í Hringbraut við Framnesveg.
Útboðsgögn afhent: | 26.08.2021 kl. 11:00 |
Opnun tilboða: | 15.09.2021 kl. 11:00 |
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem gerð hafa verið aðgengileg án endurgjalds á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.