F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Endurnýjun umferðarljósa í Reykjavík, útboð nr. 15289
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 16:00 þann 24. ágúst 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 7. september 2021.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur.
Lýsing á verkefninu:
Verkefnið felst í því að endurnýja umferðarljósabúnað og lagnaleiðir við 7 ljósastýrð gatnamót ásamt því að bæta úr aðgengismálum við gatnamótin með því að setja leiðarlínur og viðvörunarhellur í yfirborð. Jafnframt verður bætt úr götulýsingu og yfirborðsmerkingar endurgerðar. Á þremur gatnamótum verður farið í meiri yfirborðsbreytingar eins og t.d. aflögn á akreinum/afreinum og þrengingu.
Gert er ráð fyrir að verktaki taki hvern stað fyrir og klári áður en byrjað er á nýjum stað.
Helstu verkþættir eru: Gröftur, fylling, veitulagnir (rafmagn), útskipting á umferðarljósakerjum, niðursetning skynjara, steyptar stéttar, hellulögn og annar yfirborðsfrágangur.