Vinna við nýtt hjúkrunarheimili við Árveg á Selfossi gengur vel segir Leifur Stefánsson, verkefnastjóri hjá Eykt.
„Málningarvinnan er hafin innandyra, flísalagnir, hurðir og innréttingar eru komnar svo það er mikið að gerast þar. Þá er allt komið á fullt í klæðningarvinnu utanhúss,“ segir Leifur.
Lóðavinna eftir verslunarmannahelgi
Samkvæmt Leifi verður farið í lóðarvinnu eftir verslunarmannahelgi.
Þá fara vinnubúðirnar af lóðinni og fá að færa sig inn á lóðina hjá Mjólkursamsölunni meðan verið er að klára.
Aðspurður um að aðfangakeðjur séu hægfara vegna Covid – 19 segir Leifur það rétt og þeir eins og aðrir finni fyrir því að hörgull sé á efni og langan tíma taki að fá efni til landsins að utan m.a. vegna skorts á gámum og flutningsplássi í skipum.
Hann segir þó að verkefnið hafi almennt gengið vel og ekkert stórt sem komið hafi upp á.
Þá er áætlað að verklok séu í nóvember – desember á árinu.
Heimild: Dfs.is