Hafnarsjóður Fjallabyggðar óskar eftir tilboð í ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
· Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi Bæjarbryggju, um 205 m.
· Fylling og kjarni, 22.000 m³.
· Jarðvinna, uppúrtekt og þjöppun.
· Reka niður 162 stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum.
· Steypa um 227 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
· Grjótgarður, um 60 m langur.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. júní 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), og á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, frá og með þriðjudeginum 20. október 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3.nóvember 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.