F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Safamýri 5. Nýr leikskóli. Uppbygging og fullnaðarfrágangur, útboð nr. 15269
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 26. júlí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, 20. ágúst 2021.
Verkið felst í niðurrifi, uppbyggingu og fullnaðarfrágangi á fyrirhuguðum leikskóla í Safamýri 5, Reykjavík.
Byggingin var byggð árið 1961 og er hér um endurnýjun húsnæðisins að ræða.
Aðeins matshluti 01 er undir í þessum áfanga. Matshluti 02 er nýrri og verður endurnýjaður í kjölfarið.
Matshlutarnir eru tengdir með tengibyggingu og skiptist hún á milli þeirra.
Tengibyggingin verður endurnýjuð í þessum áfanga.
Byggingin er á einni hæð, 2,7 til 4,9 metrar á hæð. Heildarstærð húsnæðis er 654,0 m2.
Helstu verkþættir eru:
- Niðurrif innanhúss
- Uppbygging og fullnaðarfrágangur húsnæðis
- Endurnýjun gluggakerfis
- Niðurrif og uppbygging þakvirkis
- Lagning raf-, loftræsti og lagnakerfa
- Fullnaðarfrágangur lóðar