Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg í Garðabæ er nú í fullum gangi, en þær hófust í byrjun maí sl.
Á meðan vinna stendur yfir er umferð beint um hjáleið og hefur það, þrátt fyrir mikla bílaumferð daglega, gengið átakalaust fyrir sig.
Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá í síðustu viku voru menn við vinnu í nýjum undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi og eru göngin gerð úr forsteyptum einingum.
Heimild: Mbl.is